top of page

Le Kock mótaröðin - Nóvember

ree

VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Sjöunda mótið fer fram miðvikudagskvöldið 12. nóvember kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík).


Enski stórmeistarinn vinsæli Simon Williams mætir til leiks. Simon er þekktur streymari með fjölda fylgjenda og hefur séð um skákskýringar á fjölda heimsklassa móta. Auk þess að vera mikill Íslandsvinur er Simon með skemmtilegan skákstíl og veigrar sér ekki við að fórna liði. Aðdáendur kappans ættu ekki að láta sig vanta enda einstaklega þægilegur í umgengni.


Mótin verða 8 í heildina og eru dagsetningarnar á þeim yfirleitt fyrsti miðvikudagurinn í hverjum mánuði.

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

2. 40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes


U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes


Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.


Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi. 

Svona verða stigin eftir sætum, frá fyrsta og niður: 12, 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.


Stig í mótaröðinni eftir sex mót

Hægt er að sjá stöðuna á Google Sheets 



12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

  1. X TBA

  2. X TBA

  3. X TBA


Þátttökugjald á mótið er 3.000kr 

Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!

Kennitala: 570418-2030

Reikningsnúmer: 0133-26-013982


Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 þurfa að vera með forráðamann með sér.


Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!

Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is.


 
 
 

Comments


bottom of page