top of page

VignirVatnar.is X Snóker og Pool – Maí mót laugardaginn 23. maí

  • May 12
  • 1 min read

VignirVatnar.is stendur fyrir skákmóti laugardaginn 23. maí klukkan 17:00 í húsnæði Snóker & Pool að Lágmúla 5. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og verður mótið reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Athygli er vakin á því að aðeins 33 keppendur geta tekið þátt og er mótið eingöngu ætlað 18 ára og eldri.


Þátttökugjald er 3000 krónur en áskrifendur að VignirVatnar.is greiða ekkert þátttökugjald.

Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin auk verðlauna í eftirtöldum flokkum:

  • U-2000 Elo

  • U-1800 Elo

  • Stigalausir

Frábær tilboð verða á barnum á meðan mótinu stendur.

Skráningu lýkur á hádegi laugardaginn 23. maí.


Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband á netfangið:vignirvatnar.is@gmail.com

Reikningsupplýsingar:

Reikningsnúmer: 0545-26-070203

Kennitala: 070203-2860


Hlökkum til að sjá ykkur!

 
 
 

Comments


bottom of page